 |
EXPO
LJÓSMYNDUN
|
|
EXPO auglýsingastofa hefur mjög öfluga ljósmyndadeild.
Á staðnum er ljósmyndastúdíó og starfa tveir faglærðir ljósmyndarar hjá EXPO í 100% starfi.
Tækjabúnaður og aðstaða er í stöðugri endurnýjun og er leitast við að uppfæra búnað og aðstöðu eftir verkum og þörfum.
|
 |
EXPO
HLJÓÐ
|
|
EXPO auglýsingastofa starfrækir hljóðvinnslu- og upptökustúdíó.
Deildin framleiðir útvarpsauglýsingar, hljóðvinnur fyrir sjónvarp og talsetur kynningarmyndbönd.
Í starfsmannaflóru EXPO eru tónlistarmenn sem semja stef fyrir viðskiptavini EXPO.
|
 |
EXPO
MARKAÐSRÁÐGJÖF
|
|
Markaðsráðgjöf EXPO starfar með viðskiptavinum stofunnar í stærri verkefnum þar sem markaðskunnáttu er þörf. Starfsmenn stofunnar eru háskólamenntaðir í markaðs- og viðskiptafræðum og hafa áralanga reynslu af markaðsstörfum.
|
 |
EXPO
FARSÍMAR
|
|
Með tilkomu þeirrar þróunar sem hefur átt sér stað á farsímamarkaðnum hafa farsímalausnir færst mjög ofarlega í huga viðskiptavina EXPO. Starfsmenn stofunnar hafa kynnt sér lausnir og virkni þessarar miðlunar í þaula og mæta þörfum viðskiptavinarins með þekkingu og lausnum sem henta hverju sinni.
|
 |
EXPO
SJÓNVARP
|
|
Kvikmyndadeild EXPO er kraftmikil deild sem framleiðir sjónvarpsauglýsingar og kynningarmyndbönd hvort sem um er að ræða í kvikmyndatökum eða grafík. Í kvikmyndatökum er notast við Canon 5D sem gefur framleiðslunni mikinn sveigjanleika í áferð og gæðum á myndefni.
Deildin hefur þrjá starfsmenn sem sérhæfa sig í hreyfigrafík og eru með púlsinn á þeim tækninýjungum sem eiga sér stað hverju sinni.
|
 |
EXPO
SKILTI
|
|
Skiltadeild Expo er öflug deild sem hefur það að markmiði að sjá um skiltagerð viðskiptavina allt frá hönnun til útboða á smíði og viðhaldi skilta og merkinga. Deildin er mikil hagræðing fyrir viðskiptavini þegar þarf að nálgast þekkingu á skiltagerð og merkingum.
|
 |
EXPO
HUGMYNDIR
|
|
Hjá EXPO starfa hugmyndasmiðir sem vinna að því að skapa og fá sniðugar hugmyndir.
Hugmyndasmiðir okkar vinna náið með öðrum starfsmönnum EXPO í einu og öllu.
|
 |
EXPO
HÖNNUN OG PRENTVERK
|
|
Hönnunarteymi EXPO er samansett af hönnuðum og prentsmiðum. Teymið skiptist niður í þá sem eru í daglegri framleiðslu og þá sem eru í grunnhönnun og vinna með hugmyndasmiðunum. Þar má nefna uppsetningu á eyðublöðum, umbrot á bæklingum, ársskýrslum, tímaritum og auglýsingaefni. Í teyminu eru eingöngu starfsmenn sem hafa menntun á sínu sviði og mikla reynslu í faginu.
|
 |
EXPO
VEFFORRITUN
|
|
Vefforritari EXPO sér um þær lausnir sem viðkemur vefjum þeirra viðskiptavina sem þess óska. Gríðarleg þekking er til staðar á stofunni þegar kemur að uppsetningu heimasíðna og hvaða aðferðir eru líklegastar til að ná til neytenda með vefnum. Leitarvélabestun og mælingar er stór þáttur í rekstri heimasíðu en stofan sér um þessa þjónustu þegar það á við.
|
 |
EXPO
VEFBORÐAR
|
|
EXPO auglýsingastofa býður upp á vefborðagerð. Vefborðarnir sem eru í boði eru misjafnir eins og þarfir viðskiptarvinarins og allir geta fundið það sem þeim hentar best.
Hjá EXPO eru framleiddir Flassborðar, vídeóborðar og HTML borðar.
|
 |
EXPO
SAMFÉLAGSMIÐLAR
|
|
Notkun samfélagsmiðla og ágæti þeirra hefur verið mikið í umræðunni í makaðsgeiranum.
EXPO býður upp á ráðgjöf í notkun á samfélagsmiðlum og framleiðslu á efni til birtingar á þeim.
|
 |
EXPO
SÝNINGAR
|
|
Starfsfólk EXPO hefur mikla reynslu í uppsetningu og framleiðslu uppákoma, sýningarbása og alls þess sem tengist sýningarhaldi.
|
 |
EXPO
PRENTUMSJÓN OG LAUSNIR
|
|
EXPO býður viðskiptavinum sínum upp á umsjón prentverka þar sem gæðum og faglegum vinnubrögðum er fylgt eftir, allt frá skilum til prentsmiðju til afhendingar á prentverki. Í prentlausnum er EXPO framarlega þar sem stofan hefur í starfsmannaliði sínu vöruhönnuði og hönnuði sem hafa mikla reynslu í prentlausnum og hugmyndavinnu tengdri þeim verkum.
|